Banaslys við Hólmavík

Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá því að síðdegis í gær hafi Lögreglunni verið tilkynnt um alvarlegt umferðarslys, á Innstrandarvegi, skammt frá Hólmavík. Þar hafði bifhjóli verið ekið aftan á bifreið með þeim afleiðingum að ökumaður bifhjólsins slasaðist mikið og lést stuttu síðar. Ekki er hægt að greina frá nafni ökumannsins að svo stöddu.

Lögreglan á Vestfjörðum annast rannsókn málsins í samvinnu við Tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom einnig á vettvang vegna rannsóknar málsins.

DEILA