Áform um byggingu á 30 íbúðarhúsum á Bíldudal

Bíldudalur. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Fyrirtækið Bernódus ehf hefur sótt um 30 lóðir undir íbúðarhús á Bíldudal. Á næstu dögum hefjast viðræður milli fyrirtækisins og Vesturbyggðar um umsóknina. Einkum er hugsað til þess að byggja einbýlishús.

Fyrirtækið Bernódus ehf var stofnað 1969 á Bíldudal og hét áður Niðursuða VBO Bíldudal og framleiddi m.a. grænar baunir.

Sonur Valdimars B. Ottóssonar (VBO) er Jens H. Valdimarsson og hann er einn þriggja sem helst eru í forsvari fyrir byggingaráformin á Bíldudal, en að þeim koma m.a. byggingarmeistari og rekstrarhagfræðingur.

Jens sagði í samtali við Bæjarins besta að það væri virkilega tímabært að hefja byggingarframkvæmdir á Bíldudal því skortur á íbúðarhúsnæði stæði frekari uppbyggingu á staðnum fyrir þrifum.

„Það er alla vega hægt strax í dag að byggja 10 hús í dag“ segir Jens miðað við eftirspurnina.

Ef vel gengur að fá lóðir væri hægt að hefja framkvæmdir á næsta ári.

 

DEILA