þrír heiðraðir í Bolungavík

Frá afhendingu heiðursmerkisins í Hólskirkju. Frá vinstri: Sveinbjörn Ragnarsson, Benedikt Guðmundsson, Páll Guðmundsson og Elías Ketilsson. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Á sjómannadaginn voru þrír sjómenn heiðraðir í Bolungavík. Fór athöfnin fram í Hólskirkju og það var hin aldna sjómannskempa Elías Ketilsson sem veitti heiðursmerkin fyrir hönd Sjómannadagsins í Bolungavík.

Þeir sem voru heiðraðir voru Sveinbjörn Ragnarsson og bræðurnir Benedikt Guðmundsson og Páll Guðmundsson. Þeir hafa allir stundað sjómennsku í nærri hálfa öld og einnig gert út eiginn bát um lengri tíma.

 

 

DEILA