Súðavíkurhlíð – framkvæmdir í fullum gangi

Stálþil á Súðavíkurhlíð. Myndir:Kristinn H. Gunnarsson.

Á Súðavíkurhlíð eru framkvæmdir í fullum gangi við að sprengja og grafa út snjóflóðaskáp og undirbúningur fyrir uppsetningu á stálþilum.  Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar segir að áætlaður heildarkostnaður við verkið í ár sé 65 m.kr en búið er að losa ríflega helming af bergi í núverandi skeringu.  Áætlað er að bæta við u.þ.b. 20 metrum af viðbótar stálþili í þessari lotu.

DEILA