SFS: vilja ekki fiskeldisfrumvarpið

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, arftaki Landssambands íslenskra útvegsmanna, sendi í gærkvöldi frá sér fréttatilkynningu þar sem farið er fram á að frestað verði að gera frumvarpið um fiskeldi að lögum vegna mikilla annmarka á frumvarpinu.

Fréttatilkynningin er svohljóðandi:

Betra heima setið

 Frumvarp til laga um starfsumhverfi fiskeldis er nú til annarrar umræðu á Alþingi. Fram kom í ræðu framsögumanns atvinnuveganefndar á Alþingi að mikil eindrægni hefði verið í nefndinni um málið og tekist hefði að sætta þar ýmis sjónarmið. Þótt sögð hafi verið samstaða í nefndinni, eru það þó fyrirtækin í landinu sem þurfa að fylgja ákvæðum nýrra laga, þar er veruleikinn fyrir utan veggi Alþingis.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vilja árétta að fiskeldi er að verða veigamikil stoð í íslensku efnahagslífi og mikilvægt er að uppbygging þess verði í sátt við bæði samfélag og umhverfi. Fyrirliggjandi frumvarp þrengir hins vegar mjög að rekstrarskilyrðum fiskeldisfyrirtækja og hamlar verulega þeirri uppbyggingu sem nauðsynleg er í atvinnugreininni svo hún geti til framtíðar skapað góð störf og skilað tekjum til samfélagsins. Margir þýðingarmiklir agnúar eru á frumvarpinu og um áhrif þeirra fást engin svör, hvorki frá ráðherra né þingmönnum.

Af þessum sökum óska Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi þess að afgreiðslu frumvarpsins verði frestað. Færi gefst þá til að endurskoða mikilvæga efnisþætti frumvarpsins og færa til betri vegar. Sú vinna gæti þá orðið til þess að skapa meiri sátt um fiskeldi.

DEILA