Rykhraðinn: „Væri nú ekki rétt að slá aðeins af, Mundi?“

Um þetta leyti fyrir fjórum árum fundu dýrfirskir spekingar loks upp formúluna að svokölluðum rykhraða á vegum með óbundnu slitlagi.  Eins og til dæmis á veginum á Vesturleið frá Þingeyri í Vatnsfjörð, sem er um 70 km langur.

Formúlan  er svona =A í öðru veldi +B í þriðja veldi = 40 – 50 km meðalhraði á klst. Þetta þykir náttúrlega dálítið sérstakt, en er samt sem áður staðreynd, að sögn lærisveins Arkímedesar, sem fann upp rúmþyngdina. Hann  býr á Þingeyri sem kunnugt er.

Tökum sem dæmi bifreið sem ekur á 90 – 100 km hraða á vegi sem er skraufþurr af margra vikna þurrki eins og nú háttar til. Hann sendir líklega út í andrúmsloftið nokkur kg af ryki á hvern ekinn km. Sem er náttúrlega ekkert annað en ofaníburður, sá fínasti úr veginum. Bifreið sem aftur á móti ekur á 40 – 50 km meðalhraða sendir sama og ekkert út í andrúmsloftið af ofaníburði. Þið ættuð að prófa þetta sjálfir lesendur góðir. En kannski liggur okkur alltaf svo mikið á að við megum ekkert vera að því að spekúlera í svona löguðu! En væri nú ekki rétt að slá aðeins af, Mundi? Sérstaklega ef maður er nú í sumarfríi!

Hallgrímur Sveinsson.

DEILA