Hátíðahöldin á Hrafnseyri 17. júní -Heilbrigðisráðherra með hátíðarræðu

Frá hátíðinni í fyrra. Forseti Íslands leggur blómsveig að minnisvarða um Jón Sigurðsson.

Að venju verða hátíðahöld á Hrafnseri þann 17. júní.

Dagskráin er þannig:

13:00 – 13:45 Hátíðarguðþjónusta: sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir Þingeyrarprestakalli þjónar fyrir altari og sr. Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti prédikar.

Undirspil: Jóngunnar Biering Margeirsson.

Kaffiveitingar á meðan hátíð stendur

14:15 Setning Þjóðhátíðar.

Tónlist: Jóngunnar Biering Margeirsson

Hátíðarræða: Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra

Vefsíðan Sagnabrunnur Vestfjarða verður kynnt: Kjartan Ólafsson

15:00 Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda.

Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson.

Opnun myndlistarsýningar sumarsins eftir Harald Inga Haraldsson.

Börn geta farið á hestbak undir leiðsögn.

Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu.

Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30

Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 16:45

Vinsamlegast hafið samband við reception@uwestfjords.is eða í síma 450 3040 til að skrá ykkur í rútu.

Kaffi og afmælisterta í boði Hrafnseyrar verður á meðan á dagskrá stendur fram til kl. 17:00.

Einnig verður hægt að kaupa súpu með brauði.

DEILA