Fjarheilbrigðisþjónusta mikilvæg til að jafna aðgengi landsmanna

Fundarstjóri og frummælendur, f.v.: Ragnhildur Hjaltadóttir, Niclas Forsling, Sandra Brá Jóhannsdóttir, Auðbjörg B. Bjarnadóttir og Sigríður Jakobínudóttir.

Í gær var haldin í Reykjavík á vegum  samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins ráðstefna um fjarheilbrigðisþjónustu í dreifbýli í Norræna húsinu.

Á fundinum var fjallað um reynslu Svía á þessu sviði, stefnumótun og áform Íslendinga og tilraunaverkefni á Kirkjubæjarklaustri sem styrkt er á grundvelli byggðaáætlunar. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sagði það eitt af markmiðum byggðaáætlunar stjórnvalda að jafna aðgengi almennings um land allt að almennri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu. Alls væru 7 af 54 aðgerðum byggðaáætlunar tileinkaðar heilbrigðismálum, þeirra á meðal væru verkefni um fjarheilbrigðisþjónustu, fæðingarþjónustu og mæðravernd, héraðslækningar og aðgang að geðheilbrigðisþjónustu svo nokkuð væri nefnt.

Niclas Forsling, verkefnastjóri hjá Miðstöð fjarheilbrigðisþjónustu (Centre for Rural Medicine) í sveitarfélaginu Storuman í Norður-Svíþjóð, flutti fyrirlestur um reynslu Svía á þessu sviði.  Sigríður Jakobínudóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, fjallaði um áform íslenskra stjórnvalda um að efla fjarheilbrigðisþjónustu til muna. Loks fluttu Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps og Auðbjörg B. Bjarnadóttir, hjúkrunarstjóri og ljósmóðir fyrirlestur þar sem þær kynntu tilraunaverkefni á sviði fjarheilbrigðisþjónustu á Kirkjubæjarklaustri.Fyrirlestur þeirra hefst eftir 1:29:35 klst.

DEILA