Brakandi sól á Skjaldfönn á laugardaginn

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur rekur vefinn blika.is sem gefur upplýsingar um veðurspá. Bætt hefur verið inn í gagnagrunninn upplýsingum um öll lögbýli landins og fjölmörg eyðibýli að auki.  Með því hafa bæst við yfir 6 þúsund staðsetningar.  Fyrir voru um 3 þúsund örnefni, veðurstöðvar, skálar og gististaðir á landinu. Líka sumarhúsalönd, golfvellir, veiðihús, eyjar, fjallstindar o.fl. um land allt.

Alls er finna veðurspá fyrir 9000 staði á landinu og í tilkynningu til fjölmiðla segir:

„Blika.is tengir saman skrár yfir örnefni og fínkvarða veðurspár ekki ósvipað og „norsku“ spárnar sem margir þekkja á yr.no. Nema að Blika.is reiknar sitt eigið veðurlíkan í hraðvirkum tölvum fjórum sinnum á dag í þéttriðnu neti með klukkustundar upplausn. Möskvarnir eru 3 km á meðan spár yr.no yfir Íslandi eru með 12 km á milli reiknipunkta.

Veðurþjónustan á blika.is er öllum opin og aðgengileg. Vefurinn er einfaldur og hraðvirkur. Hann er sérstaklega sniðinn að snjallsímum. Spákerfið er í stöðugri þróun. Væntanleg er ensk útgáfa og gæði spánna mun batna með gervigreind. Þá er keyrð endurgreining aftur í tímann þar sem veðurmælingar koma við sögu. Tilraunir á nokkrum stöðum s.s. í Reykjavík og á Ísafirði lofa þar góðu.“

Til fróðleiks og gamans er birt hér veðurspá næstu daga fyrir lögbýlið Skjaldfönn í Nauteyrarhreppi hinum forna í Ísafjarðardjúpi. Eins og sjá má er spá glaða sólskini allan laugardaginn, en hitinn mætti vera ögn hærri.

DEILA