Þingeyri: dagur harmónikkunnar á laugardaginn

Frá harmónikkudeginum 2015 sem einnig var haldinn á Þingeyri. Hér sést hluti af dýrfirsku sveitinni. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Á laugardaginn, þann 4. maí,  er dagur harmónikkunnar og verður af því tilefni efnt til harmónikkudansleiks í Félagsheimilinu á Þingeyri. Það er Harmónikkufélag Vestfjarða sem stendur fyrir viðburðinum og vel við hæfi að halda daginn á Þingeyri þar sem harmónikkusveitin í Dýrafirði er bæði fjölmenn og vel mönnuð.

Dagskrá hefst kl 15 og stendur yfir til kl 17.

Kvenfélagið Von sér um veitingarnar.

Kaffi og vöfflur á vægu verði.

Ókeypis aðgangur.

Allir velkomnir.

Harmónikkufélag Vestfjarða.

 

DEILA