Lýðháskólinn á Flateyri: Fyrsta útskrift nemenda var 4. maí 2019

Frá skólaslitunum. Myndir: aðsendar.

Fyrsti hópur nemenda hefur nú verið útskrifaður frá Lýðháskólanum á Flateyri og skólanum slitið með viðeigandi hætti.

Athöfnin fór fram á björtum og fallegum degi, laugardaginn 4. maí s.l. að viðstöddum nemendum, fjölskyldum og vinum þeirra og vinum og velunnurum skólans og samanstóð af ræðum, skemmtiatriðum, vitnisburði nemenda og skrúðgöngu á útskriftarsýningu nemenda í Höllinni og Sundlaug Flateyrar.

Hér fer á eftir frásögn Helenu Jónsdóttur, skólastjóra:

„Við kveðjum einstakan hóp nemenda sem hafa glætt samfélagið hér á Flateyri lífi svo um munar síðasta vetur og sett taktinn fyrir skólahald til framtíðar. Fyrsta skólaárið hefur gengið vonum framar og óhætt er að segja að þeir 28 nemendur sem útskrifast að þessu sinni fari héðan reynslunni ríkari og sem sterkari einstaklingar.

Við göntuðumst með það hér á skólaslitum að nemendur hafi verið varaðir við í upphafi skólaárs að þetta fyrsta ár í sögu Lýðháskólans yrði í senn sögulegt, spennandi og tilraunarkennt. Og við sem höfum starfað og numið við skólann þetta fyrsta skólaár staðfest að þetta hafi ræst svo um munar.

Tvær ólíkar brautir voru í boði fyrir nemendur Lýðháskólans þennan fyrsta vetur: Hugmyndir, heimurinn og þú og Hafið, fjöllin og þú.

Á námsbrautinni Hugmyndir, heimurinn og þú vann sterkur hópur nemenda í vetur að hugmyndavinnu, listsköpun og miðlun og hafa nemendur þróað sig sem skapandi einstaklinga og hyggja mörg hver á frekara nám í skapandi greinum. Þau enduðu svo skólaárið á sýningar- og skemmtiferð til Patreksfjarðar þar sem þau settu upp sýningu í Húsinu á Patreksfirði og heimsóttu grunnskólann og miðluðu því sem þau hafa lært til nemenda hans.

Námsbrautin Hafið, fjöllin og þú hefur víðari skírskotun og þar liggur ekki eins beint við nemendum að sækja um sértækt nám í framhaldinu en öll eiga þau það sameiginlegt að hafa öðlast mikla færni í að nýta afurðir náttúrunnar, ferðast um í henni og njóta hennar á öruggan og umhverfisvænan hátt. Útskriftarferðina skipulögðu þau svo alfarið sjálf og dvöldu í þrjár nætur á Snæfjallaströnd þar sem þau m.a. gengu upp á Drangajökul.

Gaman er frá því að segja að næstum þriðjungur þeirra nemenda sem lauk námi núna í vor ætlar að vera áfram á Flateyri eða á svæðinu. Flateyringar og nærsveitamenn hafa enda tekið skólanum og nemendum opnum örmum og því ekki skrítið að mörg þeirra vilji vera hér áfram.

Að lokum er rétt að þakka Flateyringum og öðrum velunnurum skólans. Hér hafa íbúar staðið við bakið á okkur, rétt okkur hjálparhönd þegar við höfum þurft á að halda, mætt á alla þá viðburði sem við höfum staðið fyrir og síðast en ekki síst opnað faðm sinn og þorpsins til að taka á móti okkur.

Án þeirra hefði þetta ekki gerst. Flateyri er fullkominn staður fyrir lýðháskóla!“

Opið er fyrir umsóknir í Lýðháskólann á Flateyri. Umsóknarfrestur er til 15. júní. Tekið er við umsóknum á vefsvæði skólanshttps://lydflat.is/

DEILA