knattspyrna: sex leikmenn Vestra valdir í æfingabúðir

Stúlknahópurinn í æfingabúðum KSÍ.

Á hverju ári eru valdir krakkar úr félögum landsins til að taka þátt í svokallaðri Hæfileikamótun KSÍ. Það eru æfingabúðir sem sambandið heldur á Vesturlandi/Vestfjörðum; Norðurlandi, Austurlandi og höfuðborgarsvæðinu og er ætlað að gefa þjálfurum yngri landsliða Íslands í knattspyrnu betri mynd af þeim möguleikum sem þeir eiga í leikmönnum.

Knattspyrnudeild Vestra hefur átt þátttakendur í þessu verkefni frá upphafi. Eftirtaldir leikmenn vor valdir til að fara í  hæfileikamótun KSÍ fyrir Vestfirði/Vesturland sem haldin var föstudaginn 26. apríl á Ólafsvík:

Guðmundur Páll Einarsson

Kristinn Hallur Jónsson

Bríet Sigurðardóttir

Birta Kristín Ingadóttir

Sigrún Betanía Kristjánsdóttir

Solveig Amalía Atladóttir

Allir Vestfirðingarnir stóðu sig mjög vel í æfingabúðunum.  Nú mun framtíðin leiða í ljós hvort einhver þessarra keppenda muni verða fyrir valinu í yngri landslið Íslands.

Drengjahópurinn í æfingabúðunum.
DEILA