Helga Guðmundsdóttir, Bolungavík er 102 ára í dag.
Helga er fædd 17. maí 1917 á Blesastöðum á Skeiðum. Þar ólst hún upp, ein 14 systkina sem náðu fullorðinsaldri en tvö systkini hennar létust í æsku.
Helga giftist Bolvíkingnum Gunnari Halldórssyni og flutti til Bolungarvíkur árið 1952. Þau eignuðust þrjú börn. Agnar búsettur í Miklabæ í Skagafirði, og Ósk, kennari í Kópavogi. Látin er Kristín sem síðast var kennari í Keflavík.
Eftir því sem best er vitað er Helga fyrsti Bolvíkingurinn sem nær 100 ára aldri.
Bæjarins besta óskar Helgu til hamingju með daginn.