Atvinnuleysi í apríl mælist það mesta í 5 ár

ASÍ hefur í fréttatilkynningu vakið athygli á vaxandi atvinnuleysi.

Segir að atvinnuleysi í apríl hafi mælst 3,7% og voru að meðaltali 6.803 manns án atvinnu í mánuðinum. Það er mesta atvinnuleysi síðan í apríl 2014 þegar það mældist 4,1%.

Skráð atvinnuleysi jókst milli mánaða um 0,5 prósentustig, úr 3,2% í mars. Í lok apríl voru 326 fleiri atvinnulausir en í lok mars. Atvinnuleysi í apríl 2018 var 2,3% og er aukningin því 1,4 prósentustig milli ára. Hlutfallslega eru heldur fleiri konur atvinnulausar en karlar eða 3,8% meðan 3,6% karla eru á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnunar.

Erfiðara að fá nýtt starf

Töluverð fjölgun hefur á síðustu mánuðum orðið í hópi þeirra sem verið hafa án atvinnu í allt að hálft ár, þeir voru 3.188 í desember en hafði fjölgað í 4.583 í apríl. Sömuleiðis hefur fjölgað í þeim hópi sem verið hefur án atvinnu í 6-12 mánuði. Þeir voru 1.450 í apríl samanborið við 1.137 í febrúar. Svo virðist því sem þeir sem missa atvinnuna séu lengur að fá nýtt starf en áður.

DEILA