„Hvað verður um mig?” Málþing um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við fráfall foreldris

Mánudaginn 29. apríl fer ráðstefnan „Hvað verður um mig“ fram kl. 15-17:30 í húsi Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík. Ráðstefnunni verður einnig streymt beint á heimasíðu Krabbameinsfélagsins.

Á málþinginu fjalla fyrirlesarar um málið frá ýmsum hliðum, en í fyrsta sinn hafa verið teknar saman tölur hjá Hagstofunni um fjölda barna sem lenda í þessari stöðu á ári hverju á Íslandi. Tölurnar snúa að aldri barnanna og dánarorsök foreldra og gefa til kynna hversu mikilvægt er að skapa lagalega umgjörð til að hlúa að þessum börnum og fjölskyldum þeirra.
Kynntar verða rannsóknir um upplifun barna eftir fráfall foreldris og hvernig nýta megi þær
upplýsingar til að skapa umgjörð fyrir fagfólk og þá sem standa að börnunum. Jafnframt verður greint frá rannsóknum á stöðu barna sem aðstandenda krabbameinssjúklinga. Fjallað verður um eigin rétt barna og þarfir fyrir stuðning og leiðsögn, skyldur og ábyrgð hins opinbera, tengsl fjölskyldu, samfélags og sjálfstæða þörf barna fyrir sorgarvinnslu og utanumhald allt til fullorðinsára. Jafnframt verður fjallað um ný lagaákvæði og verklagsreglur til að styrkja stöðu og rétt barnanna.

„Það er stórt og óafturkræft áfall þegar foreldri barns fellur frá og hefur mikil áhrif á líf þess.Það er sorgleg staðreynd að á hverju ári lenda börn í þessari stöðu og samfélagið allt þarf að standa með þeim og sameinast um að tryggja velferð þeirra, eftir áfallið og eins lengi og þörf krefur, á þann hátt að þeim vegni sem allra best eftir missinn,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Dagskrá
Kl. 14:50 Tónlist: Svavar Knútur tónlistarmaður
Kl. 15:00 Setning: Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra
Ávarp: Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
Erindi: Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands:
Íslenskar rannsóknir á stöðu barna sem aðstandendur krabbameinssjúklinga
Erindi: Anton Örn Karlsson, deildarstjóri atvinnu-, lífskjara- og mannfjöldadeildar
Hagstofu Íslands: Börn sem missa foreldri – fjöldi barna og dánarorsakir foreldra
Erindi: Anna Rós Jóhannesdóttir, yfirfélagsráðgjafi Landspítala Íslands: Bætt verklag í
þágu barna og fjölskyldna við andlát foreldris
Erindi: Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur: „Hvað verður um mig?“

Kaffihlé

Erindi: Vilhjálmur Árnason, alþingismaður: Stefnan tekin
Erindi: Birna Dröfn Jónasdóttir, Nýrri dögun – sorgarmiðstöð:
„Og svo hrundi heimurinn”
Erindi: Heiðrún Jensdóttir formaður Arnarins minningarsjóðs:
Sorgarúrvinnsla – helgardvöl fyrir börn í Vatnaskógi
Samantekt erinda: Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur
Ávarp: Salvör Nordal, umboðsmaður barna
Ávarp: Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
Lokaorð: Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra
Kl. 17:45 Áætluð dagskrárlok

Fundarstjórar:
Laufey Erla Jónsdóttir, sérkennslustjóri og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags
Íslands.

Aðstandendur málþingsins:
Hópur áhugafólks um hag barna við fráfall foreldris, Félags- og barnamálaráðuneytið,
Heilbrigðisráðuneytið, Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, Landspítalinn og Krabbameinsfélag Íslands.

Nánari upplýsingar:
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Pálsson hjá Krabbameinsfélagi Íslands.

DEILA