Vilja meira selt á fiskmörkuðum

Arnar Atlason, formaður SFÚ.

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda áttu í síðustu viku fund með fulltrúum Sjómannasambands Íslands, félagi vélstjóra-og málmtæknimanna og félagi skipstjórnarmanna. Ýmis málefni félaganna voru rædd, þar með talin kjaramál og verðlagsmál.

Fundarmenn voru sammála að skora á stjórnvöld að tryggja að allur sá afli sem ekki kemur til vinnslu hjá samþættum útgerðar- og vinnslufyrirtækjum, þ.e. afli sem er seldur á milli ótengdra aðila, verði boðinn til sölu í uppboðskerfi fiskmarkaðanna. Fundurinn telur að með þessu móti megi tryggja að rétt verð fáist fyrir þennan hluta auðlindarinnar. Þannig fengju sjálfstæðar fiskvinnslur greiðari aðgang að hráefni og þjóðarhagur sé þar með hámarkaður.

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda. SFÚ voru stofnuð 1994 en hétu í upphafi Samtök fiskvinnslu án útgerðar. Samtökin hafa um árabil beitt sér fyrir frelsi í viðskiptum með fisk og að allur fiskur fari á innlendan markað og að fjárhagslegum aðskilnaði veiða og vinnslu verði komið á. Hafa fyrirtæki innan SFÚ löngum greitt hæðstu meðalverð fyrir hráefni sem í boði hefur verið, útgerðum og sjómönnum til hagsbóta.

Formaður samtakanna er Arnar Atlason.

DEILA