Vestfjarðastofa veitir styrkir

Á síðu Vestfjarðastofu er hægt að sækja um styrki til þriggja mismunandi mála.

Straumar :verkefni sem styrkir ungt listafólk

Straumar er verkefni sem styrkir ungt listafólk ættað af Vestfjörðum til að koma og deila sköpun sinni á heimaslóðum. Vestfjarðastofa kallar eftir umsóknum um styrki í verkefnið.
Veittir verða allt að 5 styrkir að hámarki 500.000 kr. hver.

Styrkirnir eru ætlaðir ungu listafólki og hönnuðum á aldrinum 20-35 ára sem hafa lokið námi úr viðurkenndum lista- eða hönnunarskóla eða er í námi sem leiðir til gráðu í viðkomandi grein. Umsækjendur skulu vera ættaðir af Vestfjörðum.

Styrkirnir skulu nýtast umsækjendum til að skapa viðburði eða deila sköpun sinni á Vestfjörðum á árinu 2019.

Sótt er um á slóðinni www.vestfirdir.is/straumar

fyrir kl. 16:00 mánudaginn 18. mars. 2019.

Öll vötn til Dýrafjarðar

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð úr sjóði sem verkefnisstjórn veitir úr í umboði Byggðastofnunar vegna ársins 2019.

Umsóknum skal skilað á eyðublaði sem finna má á Þingeyrarvefnum, fésbókarsíðu Blábankans og heimasíðu Vestfjarðastofu. Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2019. Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu við Dýrafjörð eru hvattir til að sækja um.

Styrkhæf verkefni eru rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Einnig er heimilt að styrkja stofnfjárfestingu í hvers konar verkefnum að því gefnu að þau raski ekki samkeppni á viðkomandi þjónustusóknarsvæði. Enn fremur samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga.

 

Rannsókna- og nýsköpunarsjóður Vestur- Barðastrandasýslu

Sjóðurinn hefur það hlutverk að fjölga atvinnutækifærum með því að efla rannsóknir og nýsköpunarstörf fyrirtækja, einstaklinga og stofnana sem hafa aðsetur eða lögheimili í Vestur-Barðastandasýslu.

Úthlutun verður í maí 2019 og verður sérstaklega litið til verkefna sem:

  • Stuðla að búsetu ungs fólks.
  • Efla samstarf á milli svæða.
  • Efla þekkingu á auðlindum svæðisins.
  • Stuðla að aukinni menningarstarfsemi.
  • Stuðla að bættri umgengni við umhverfið og náttúru.

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2019 og er hægt að skila umsókn hér.

DEILA