Strandakjarninn í undirbúningi

Hólmavík. Mynd:kristinn H. Gunnarsson.

Byggðastofnun og Kaupfélag Steingrímsfjarðar (KSH) hafa snúið sér til Strandabyggðar með hugmyndir um Strandakjarnann. Erindið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar Strandabyggðar í fyrradag.

Á þessu stigi er rætt um aðkomu sveitarfélagsins að þarfagreiningu en ekki beinni fjárfestingu samkvæmt því sem fram kemur í fundagerð sveitarstjórnar.  Var sveitarstjórn sammála um að taka þátt í þarfagreiningu og mótun verkefnisins.  Á síðari stigum, í ljósi frekari gagna, yrði tekin ákvörðun um aðkomu með eignarhaldi.

Sveitarstjórnin samþykkti að taka þátt í „að afla fjármagns í hönnun og byggingu Strandakjarna í samstarfi við KSH, með því að sækja um viðeigandi uppbyggingastyrki í opinbera sjóði fyrir byggðaþróun og innviðauppbyggingu“ eins og segir í fundargerð.

Ingibjörgu Benediktsdóttur oddvita var falin áframhaldandi aðkoma sveitarfélagsins með undirbúningshópi verkefnisins.

DEILA