Patreksfjörður: Smur og dekk í nýtt húsnæði

Bílaverkstæðið Smur og dekk á Patreksfirði flutti í nýtt og glæsilegt  húsnæði í síðasta mánuði. Er það við Mikladalsveg 11 og færist starfsemin í 330 fermertra húsnæði.

Páll Heiðar Hauksson, eigandi bílaverkstæðisins segir að þetta sé 18. starfsárið  og það sé orðið alhliða bílaverkstæði sem sinni Sunnanverður Vestfjörðum bæði fólksbílum og flutningabílum. Fyrirtækið er með tvo dráttarbíla sem koma sér vel þegar þarf að bregðast við bílunum og óhöppum á vestfirsku vegunum

Páll Heiðar ásamt eiginkonu sinni Gunnþórunni Bender.
DEILA