Eden: Bolvísk kvikmynd frumsýnd í maí

Aðalhluverkin í Eden eru í höndum Telmu Huldar Jóhannesdóttur og Hansel Eagle.

Kvikmyndin Eden verður frumsýnd 9. maí næstkomandi en leikstjóri og höfundur myndarinnar er Bolvíkingurinn Snævar Sölvi Sölvason. Eden er önnur mynd Snævars Sölva sem ratar í kvikmyndahúsin en fyrri myndin var gamanmyndin Albatross sem kom út árið 2015. Albatross fjallaði um líf og störf golfvallarstarfsmanna í Bolungarvík og var að öllu leyti tekin upp í Bolungavík.

 

Kvikmyndin Eden er villt blanda af spennu og kómík en hún segir frá parinu Lóu og Óliver sem framfleytir sér með fíkniefnasölu en þráir ekkert heitar en að elta drauma sína. Þegar þau lenda upp á kant við undirheimaöflin ákveða þau að taka málin í sínar hendur og hefst þá barátta upp á líf og dauða. Með aðalhlutverk í Eden fara Telma Huld Jóhannesdóttir, sem hefur getið sér gott orð á leiksviðinu og í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á borð við Illsku, Webcam og Rétti, og Hansel Eagle (Ævar Örn Jóhannsson) en hann fór með aðalhlutverkið í gamanmyndinni Albatross sem kom út árið 2015.

Kvikmyndatónlist samdi Magnús Jóhann Ragnarsson og lagasmíðar eru í höndum Þormóðs Eiríkssonar. Magnús og Þormóður hafa á síðustu misserum verið mjög eftirsóttir þrátt fyrir ungan aldur.

Framleiðendur eru Flugbeittur Kuti og Kvikmyndafélag Íslands (Kisi) en Sena sér um dreifingu á Íslandi.

Hér má sjá trailer/stiklu úr myndinni Eden: https://www.youtube.com/watch?v=VkZdlrdrf7k

Snævar Sölvi Sölvason er leikstjóri myndarinnar en þetta er hans önnur mynd í fullri lengd.
DEILA