ÆFING 50 ára – Lokadagstónleikar

Æfing Samkomuhúsinu á Flateyri 2013.

Hljómsveitin Æfing frá Flateyri fagnar 50 ára afmæli með lokadagstónleikum í Bæjarbíói Hafnarfirði laugardaginn 11. maí kl: 20:30.

 

Það bar til þann 27. desember 1968 að hljómsveitin Æfing á Flateyri kom fram í fyrsta sinn á fundi Verkalýðsfélagsins Skjaldar í Samkomuhúsinu á Flateyri. Í hljómsveitinni voru: Árni Benediktsson, Kristján J. Jóhannesson, Sigmar Ólafsson, Eiríkur Mikkaelsson og Gunnlaugur Mikkaelsson.

 

Hljómsveitin Æfing starfaði á tveimur tímaskeiðum þ.e. á Flateyri frá 1968 og fram yfir 1980 og lék þá á dansleikjum um alla Vestfirði og reyndar víðar um land. Meðlimir Æfingar á þessu tímabili voru allmargir en Árni Benediktsson og Kristján J. Jóhannesson voru með alla tíð.

 

Seinna tímabilið er frá 1990 og þá bæði á samkomum sem Önfirðingafélagið í Reykjavík kom að með einum eða öðrum hætti og við önnur sérstök tækifæri, s.s. afmæli, brúðkaup og útgáfutónleika.

 

Í hljómsveitinni Æfingu á þessu tímabili hafa verið:

 

Árni Benediktsson, Kristján J. Jóhannesson,

Sigurður Björnsson, Jón Ingiberg Guðmundsson,

Ásbjörn Björgvinsson, Halldór Gunnar Pálsson,

Önundur Hafsteinn Pálsson auk Óskars Þormarssonar

og Magnúsar Magnússonar.

 

Árið 2013 ákváðu félagarnir í Æfingu að taka upp disk sem fékk nafnið: Æfing – fyrstu 45 árin.

 

Meðal laga á þessum diski Æfingar eru: „Fínn kall kellingin hans“, „Kem eftir rétt strax“, „Allabúð“, „Púki að Vestan“ og „Heima er best“

 

Meðlimir Æfingar á þessum tímamótatónleikum eru:

 

Árni Benediktsson – Gítar – Söngur

Sigurður Björnsson (Siggi Björns) – Gítar – Söngur

Ásbjörn Björgvinsson – Bassi – Söngur

Jón Ingiberg Guðmundsson – Gítar – Söngur

Halldór Gunnar Pálsson – Gítar – Söngur

Óskar Þormarsson – Trommur

Miðasala á www.midi.is

 

DEILA