1 1/2 milljarður króna í opinbera styrki til ljósleiðaravæðingar

Fulltrúar sveitarfélaga, fjarskiptasjóðs og ráðuneytisins við undirritun samninga við sveitarfélög um ljósleiðaravæðingu í dreifbýli.

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Páll Jóhann Pálsson, formaður fjarskiptasjóðs, og forsvarsmenn sveitarfélaga, skrifuðu á föstudaginn undir samninga um samvinnustyrki frá fjarskiptasjóði og byggðastyrki frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Fjórtán sveitarfélög eiga að þessu sinni kost á byggðastyrk á grundvelli byggðaáætlunar og 22 sveitarfélög eiga kost á samvinnustyrk.

Samningarnir gefa 23 sveitarfélögum kost á samtals um 1.475 milljónum króna í styrki á árunum 2019 til 2021 til þess að tengja með ljósleiðara allt að 1.700 styrkhæfa staði auk fjölda annarra bygginga samhliða sem ekki hljóta styrk. Eigið framlag sveitarfélaga/íbúa er umtalsvert og að lágmarki 500.000 kr. fyrir hvern tengdan styrkhæfan stað. Samningar árin 2020 og 2021 eru með fyrirvara um fjárlög.

Styrkveitingarnar miðast við að tryggja verklok hjá allflestum sveitarfélögum sem um ræðir og þar með að náð verði að mestu leyti markmiði ríkisstjórnarinnar um ljósleiðaravætt dreifbýli landsins. Stefnt er að því að lokaúthlutun á grundvelli Ísland ljóstengt verði á næsta ári með það að markmiði að öll áhugasöm sveitarfélög ljúki lagningu ljósleiðara í dreifbýli fyrir árslok 2021 hið síðasta.

Verkefnið Ísland ljóstengt hófst formlega vorið 2016. Er þetta því fjórða úthlutun fjarskiptasjóðs og jafnframt þriðja úthlutun ráðuneytisins á grundvelli byggðaáætlunar á jafn mörgum árum.

Útlit er fyrir að verkefnið nái þegar upp er staðið til um það bil 5.850 – 6.000 styrkhæfra staða um allt land. Með þessum og fyrri samningum er þegar búið að semja um 5.750 staði. Hlutfall styrkhæfra staða sem tengdir verða í verkefninu öllu stefnir í að verða vel yfir 90%.

Vestfirðir 99 milljónir króna og 110 staðir tengdir

Gerð hefur verið grein fyrir styrkjunum til Vestfjarða eftir því sem upplýsinga hafa borist.  Alls eru það 7 vestfirsk sveitarfélög sem fá samvinnu- og byggðastyrki frá ríkinu. heildarfjár styrkjanna er um 99 milljónir króna og mun 110 staðir verða ljósleiðaratengdir í þessu átaki sem stendur yfir árin 2019 – 2021.

Hæst er fjárhæðin til Vesturbyggðar 45,8 milljónir króna og þar er eiggin felstir staðir sem verða tengdir eða 42. Ísafjarðarbær er næstur með 24,6 milljónir króna og 26 staði sem fá tengingu. Í Reykhólahreppi verða 12 staðir tengdir og styrkfjáræðin er 8,6 milljónir króna.   Í Bolungavík eru það 11 staðir og styrkfjárhæðin er 3,4 milljónir króna. Í Tálknafirði eri einnig 11 staðir styrktir til ljósleiðaratengingar og fjárhæðin er 3,2 milljónir króna. Í Súðavíkurhreppi verða 6 staðir tengdir og styrkurinn verður 8,5 milljónir króna. Loks er það Strandabyggð með 2 staði tengda og styrkurinn er 4,8 milljónir króna.

DEILA