Vestri æfir á sandinum í Bolungarvík

Knattspyrnumenn Vestra á harðahlaupum á Sandinum í Bolungavík. Mynd: HSV.

Frá því er sagt á síðu HSV að meistaraflokkur Vestra í knattspyrnu hafi  á laugardaginn verið með æfingu á sandinum í Bolungarvík.

Ástæðan er aðstöðuleysi háir knattspyrnumönnum á svæðinu. Gervigrasvöllurinn er undir snjó og klaka og síðasta æfing sem þar fór fram var gönguskíðaæfing íþróttaskóla HSV.

Því brá þjálfarinn, Bjarni Jóhannsson, á það ráð að vera með æfingu á sandinum í Bolungarvík. Vel var fallið út og snjólaus þéttur sandurinn var góð undirstaða fyrir hlaupaæfingu og léttan boltaleik.

Umhverfið skartaði sínu fegursta, snævi þaktar hlíðar, sól í heiði og Jökulfirðir og Grænahlíð í fjarska handan Djúps, segir í frásögninni.

DEILA