Krabbameinsfélagið fagnar samþykkt fyrstu íslensku krabbameinsáætlunarinnar

Halla Þorvaldsdóttir er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Í vikunni urðu stór tímamót þegar fyrsta íslenska krabbameinsáætlunin, sem gildir til ársins 2030, var samþykkt.

Krabbameinsfélagið fagnar þessum mikilvægu tímamótum, en félagið hefur allt frá árinu 2010 beitt sér fyrir því að gerð yrði íslensk krabbameinsáætlun.

Ráðgjafarhópur um krabbameinsáætlun starfaði á árunum 2013 til 2016 og lagði fram tillögur að krabbameinsáætlun til ársins 2020. Heilbrigðisráðherra hefur nú samþykkt tillögurnar sem krabbameinsáætlun og ákveðið að hún muni gilda til ársins 2030.

„Það er afar gleðilegt að við séum loks komin í hóp þeirra landa sem við viljum bera okkur saman við og hafa unnið eftir krabbameinsáætlunum í nokkurn tíma. Þetta er stór áfangi, bæði fyrir þá sem greinast með krabbamein en ekki síður fyrir heilbrigðisstarfsfólk, því með áætluninni eru stjórnvöld búin að setja sér metnaðarfull markmið í tengslum við krabbamein, allt frá forvörnum til endurhæfingar,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Grunnur að stefnumótun í þjónustu við fólk með krabbamein

Gert er ráð fyrir að áætlunin verði grunnur að stefnumótun í þjónustu við fólk með krabbamein á öllum stigum. Í áætluninni eru 10 markmið með mörgum undirmarkmiðum, sem snúa að forvörnum gegn krabbameinum, sérhæfðri þjónustu, greiningu og meðferð í hæsta gæðaflokki, reglubundinni gæðaskráningu á greiningu og meðferð, árangursmati, möguleikum á að taka þátt í vísindarannsóknum, valdeflingu og virkni sjúklinga og aðstandenda, samfelldri, samræmdri og heildstæðri þjónustu og meðferð, með markvissu mati á líðan og lífsgæðum,meðal annars mati á endurhæfingarþörf. Er þó ekki allt upptalið hér.

Miðað að því að koma í veg fyrir krabbamein, fækka dauðsföllum og bæta lífsgæði

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lagði til árið 2002 að þjóðir kæmu sér upp krabbameinsáætlunum. Ísland hefur nú bæst í hóp þeirra fjölmörgu landa sem eru með virka krabbameinsáætlun.

Í flestum tilfellum eru nauðsynlegir innviðir til staðar í heilbrigðiskerfinu. Hins vegar er nefnt í áætluninni að skortur er á samfelldri þjónustu, að möguleikar til endurhæfingar séu takmarkaðir og sjúklingar og aðstandendur hafi ekki nægilegt aðgengi að upplýsingum. Krabbameinsfélagið tekur heilshugar undir að úrbóta er þörf varðandi þessi atriði.

Krabbameinsfélagið ásamt stuðningshópum og aðildarfélögum um land allt er reiðubúið til að vinna að öllum góðum málum til heilla þeim sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra og til að fækka krabbameinstilvikum.

Félagið er tilbúið til að leggja sitt af mörkum til að markmið áætlunarinnar náist og hlakkar til frekara samstarfs.

 

DEILA