Heildarmyndin að skýrast

Drífa Snædal, forseti ASÍ.

Glæpastarfsemi á vinnumarkaði verður að stöðva. Hún skaðar einstaklinga og samfélagið allt. Við verðum að taka höndum saman og ráðast gegn kennitöluflakki, skilyrða keðjuábyrgð í opinberum framkvæmdum, herða eftirlit með brotastarfsemi og auka vernd fórnarlamba mansals. Þetta snýst um mannréttindi og heill samfélagsins. Öflug verkfæri til að ráðast gegn svindlurunum er að finna í tillögum starfshóps félagsmálaráðherra sem kynntar voru í gær. Þegar tillögurnar verða að veruleika verður hægt að fagna langþráðum sigri enda hafa þetta verið baráttumál verkalýðshreyfingarinnar í mörg ár. Ég er bjartsýn og vongóð um framhaldið. Að taka á glæpastarfsemi á vinnumarkaði ásamt húsnæðismálunum er risastór þáttur í að bæta kjör fólks og tryggja réttindi. Við erum sífellt að færast nær heildarmyndinni sem tengist kjarasamningunum og verður hluti lausnarinnar.

Skattamálin eru einnig risastór þáttur en við hjá ASÍ viljum sanngjarnt skattkerfi sem er raunverulega notað sem jöfnunartæki, þ.e. færir byrðarnar frá þeim sem eru tekjulægstir á þá sem eru aflögufærir.

Hversu mikið hægt er að bæta stöðu launafólks í gegnum skattkerfið ræðst eingöngu af vilja stjórnmálamanna til koma á sanngjörnu kerfi. Róttækar aðgerðir í skattamálum og bótakerfum á síðustu árum hafa nær allar orðið til að auka misrétti. Þegar leiðrétta þurfti verðtryggð húsnæðislán var 21 milljarður kr. fluttur til tekjuhæstu tíundar landsmanna og 62 milljarðar til tekjuhærri helmings framteljenda. Þegar auðlegðarskattur var afnuminn kostaði það ríkissjóð um 10 milljarða á ári og þegar miðþrep tekjuskatts var afnumið kostaði það ríkissjóð 11 milljarða á árunum 2014-2015. Á sama tíma hefur tugum þúsunda einstaklinga verið ýtt út úr barnabóta- og vaxtabótakerfunum með auknum skerðingum og minni fjármunum.

Ofan af þessu óréttlæti verður að vinda. Það er kominn tími á róttækar breytingar. Breytingar sem sannanlega auka jöfnuð.

Góða helgi,

Drífa Snædal,

forseti ASÍ.

DEILA