Flateyrarvegur : viðvörunarkerfi

 

Fréttatilkynning frá Vegagerðinni.

 

Vegagerðin er að koma á fót viðvörunarkerfi til vegfarenda með sms skeytum um snjóflóðahættu á vegi 64 Flateyrarvegi.   Þeim vegfarendum sem þess óska er hér með gefinn kostur á að gerast áskrifendur að þessum viðvörunum.   Sérstaklega er því beint til þeirra, sem oft fara um veginn vegna atvinnu sinnar, skólasóknar eða af öðrum ástæðum,  til að nýta sér þessar viðvaranir.

Um er að ræða eftirfarandi stig í skeytunum:

A:  varað er við snjóflóðahættu á næstu klukkustundum eða næsta sólarhring.

B:  lýst yfir óvissustigi,  sem þýðir að snjóflóðahætta er viðvarandi og vegfarendur hvattir til að vera        ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.

C:  lýst yfir hættustigi, veginum lokað.

D:  hættustigi aflýst og vegurinn opnaður.

Þeim vegfarendum sem áhuga hafa á að fá viðvaranir er bent á að senda tölvupóst þar sem kemur fram nafn og gsm númer á netfangið umferd@vegagerdin.is

DEILA