Vísindaportið: Super Bowl: stærsti íþróttaviðburður heims

ATLANTA, GA - AUGUST 15: A general view inside Mercedes-Benz Stadium during a walkthrough tour on August 15, 2017 in Atlanta, Georgia. (Photo by Kevin C. Cox/Getty Images)

Í Vísindaportinu föstudaginn 1. febrúar:

Super Bowl: stærsti íþróttaviðburður heims

Að þessu sinni má búast við að Vísindaportið verði á léttari nótunum og ætti enginn sem hefur áhuga á íþróttum að láta þetta tækifæri til að fræðast um amerískan fótbolta fram hjá sér fara. Gestur okkar Dan Govoni mun fjalla um sögu Super Bowl og hvernig þessi geysivinsæla, árlega keppni í amerískum fótbolta hefur þróast í gegnum árin í þann menningarviðburð sem keppnin er í dag. Það eru þrjár ástæður fyrir því að fólk horfir á Super Bowl: leikurinn sjálfur, sýningin sem fer fram í hálfleik og auglýsingarnar. Dan mun einnig fræða okkur um hvernig leikurinn fer fram, en amerískur fótbolti er mjög frábrugðinn evrópskum. Fjallað verður einnig um Super Bowl ársins 2019.

Dan Govoni er bandarískur að uppruna, frá Des Moines í Iowa-fylki, en hann býr nú á Ísafirði ásamt fjölskyldu sinni. Að mennt er Dan ferskvatnsvistfræðingur og er hann í doktorsnámi í líffræði við Háskóla Íslands. Dan er einnig fagstjóri hjá SIT (School for International Training) og stýrir hann námsleiðinni Climate Change auk þess sem hann sinnir stundakennslu við námsleiðina í Haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetrið. Kennir hann tölfræði og námskeið um loftslagsbreytingar og fjölmiðla, Communicating climate change.

Vísindaportið fer fram í kaffistofu Háskólaseturs kl. 12:10-13 og eru allir velkomnir. Að þessu sinni fer dagskráin fram á ensku.

DEILA