Vestfirsk menning blómstrar í Sundlauginni á Þingeyri

Mynd: Þingeyrarakademían. Ljósm. Hallgr. Sveinsson.

Dr. Eiríkur Bergmann sagði í Smartland á mbl.is að sundlaugarmenning okkar Íslendinga sé framlag okkar til siðmenningar. Sjálfur fer hann helst daglega í sund og saknar Vesturbæjarlaugarinnar mest þegar hann er erlendis utan vina og ættingja. Eiríkur segir sundlaugarferðir allra meina bót og samfélagið þar oft mjög sérstakt.

Lesið upp úr vestfirskum og jafnvel heimsbókmenntum!

Þetta eru orð að sönnu. Nærtækt er að nefna, að í sundlauginni á Þingeyri er ekki eingöngu hugsað um líkamlegu hliðina. Hin andlega hliðin kemur þar einnig við sögu. Í mörg ár hefur nefnilega verið lesið þar upp úr vestfirskum bókmenntum og jafnvel heimsbókmenntum. Þar sem margir spekingar koma saman, verður svo auðvitað að stofna akademíu. Þingeyrarakademían starfar af fullum þrótti í heita pottinum og við kaffiborðið hjá henni Þorbjörgu Gunnarsdóttur, sem stjórnar öllu til sjós og lands í Íþróttamiðstöðinni. Þar eru innanlandsmálin og  heimsmálin krufin til mergjar og stundum bara hreinlega leyst!

Snorri gekk til laugar

Og skal nú nefndur til sögu Snorri nokkur Sturluson. Fróðir menn segja að hann hafi gengið  til laugar upp á hvern dag er hann var í Reykholti. Snorri var at laugu, Snorri gekk til laugar og Snorri sat í laugu segir í fornum fræðum víða. Sumir telja að þar hafi hann sagt skrifurum sínum fyrir ódauðlegar bókmenntir. Þeir hafa jafnvel verið á laugarbakkanum og mundað þar fjaðurpenna sína, heimatilbúið blek og kálfsskinn. Það er ekki amalegt að hafa kallinn Snorra til fyrirmyndar í  nútímamenningunni!

Og þeir voru fleiri sem gengu til laugar fyrstu aldir Íslandsbyggðar: Grettir Ásmundarson, Egill Skallagrímsson, Guðrún Ósvífursdóttir, Kjartan Ólafsson. Vituð ér enn eða hvat? Og baðstofur voru þá nánast á hverjum bæ.

Fyrsta laug sem getið er um á landinu er einmitt Snorralaug í Reykholti. Hún er frægust lauga á Íslandi vegna aldurs og gerðar. Eignuð Snorra Sturlusyni sem sagnir herma að hafi látið gera laugina í þeirri mynd sem hún er nú, fyrir nærri 800 árum. Svo segir Jón Þorsteinsson heitinn læknir í Læknablaðinu 07. 08. 2005.

Sundlaugarmenningin á Þingeyri

DEILA