Mikill áhugi á vindorku

Frá málþinginu, sem haldið var í bogasal Þjóðminjasafnsins.

Fullt var út úr dyrum á málþingi um vindorku sem verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar stóð fyrir í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins í fyrradag. Á málþinginu var fjallað um ólíkar hliðar vindorku og þau áhrif sem vindorkumannvirki hafa á umhverfi og náttúru.

Aðalgestur málþingsins var Graham Marchbank sem sagði frá reynslu Skota af skipulagi vindorkuvera. Þá var fjallað um vindorku og skipulagsmál, sýn sveitarfélaga á framtíðarskipulag vindorku hér á landi, fjallað var um umhverfisáhrif vindorkuvera, afstöðu orkufyrirtækja sem og viðhorf ferðamanna og heimamanna.

Líflegar umræður sköpuðust á málþinginu og var ljóst af aðsókn og umræðum að mikill áhugi er á málefnum vindorkuvera hér á landi, segir í tilkynningu frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

DEILA