Dýrafjarðargöng – verkframvinda

Vinna við Dýrafjarðargöng, eftir jólafrí, hófst á ný í vikunni sem var að líða. Verktaki mætti á svæðið þann 2. janúar s.l. og hóf þá að opna svæðið og gera klárt fyrir áframhaldandi gangagröft og vegagerð. Vinna við gangagerð hófst síðan á fimmdudagskvöldið þann 3. janúar.

Eins og komið hefur fram hefur verktaki verið að fara í gegnum svæði þar sem þykkt setlag hefur kallað eftir umtalsverðum styrkingum og framvinda verið eftir því. Í lok árs 2018 var lengd ganga Dýrafjarðarmegin orðin 438,2 m og samanlögð lengd ganga 4.095,8 m sem er um 77,3% af heildarlengd.

Þessa fyrstu vinnudaga ársins 2019 hafa göngin síðan lengst um 8 m og það jákvæða er að nú sér fyrir endann á notkun styrktarboga og því vona á hærri framvindutölum framundan. Alls voru settir upp 25 styrktarbogar á um 56 m löngum kafla og var sá síðasti settur upp á aðfaranótt sunnudagsins.

Lengd að gegnumbroti er nú 1.197,2 m.

stafn í lok 1. viku 2019.
Myndir: Oddur Sigurðsson.
DEILA