Dýrafjarðargöng – verkframvinda vika 4, 2019

Vinna við Dýrfjarðargöng gekk vel í vikunni, áfram var grafið í gegnum sama stórstuðlaða basaltlagið og síðustu viku. Vikuframvindan var 83,7 m, þar með er leggurinn Dýrafjarðarmeginn orðinn 658,8 m langur, samanlögð lengd ganga er 4.343,4 m eða 81,9% af heildarlengd, sem þýðir að nú er innan við 1 km að gegnumslagi, eða 957,6 m.

Vegagerðin potaðist ágætlega áfram í vikunni og nú er skammt í að fyllingin frá göngunum nái heim að vinnubúðasvæðinu, eins og sást ágætlega á myndum af Þingeyrarvefnum í vikunni, sjá á meðfylgjandi slóð: https://www.facebook.com/thingeyri.is/photos/pcb.2462749433795087/2462744160462281/?type=3&theater

Á miðvikudaginn var opnað yfir í Arnarfjörð til að flytja búnað og efni í frárennslislagnir.

Meðfylgjandi eru mynd úr Arnarfirði og svo úr blíðunni í Dýrafirði síðastliðinn miðvikudag.

DEILA