Dýrafjarðargöng 2. vika 2019

Vinna við Dýrafjarðargöng hefur gengið vel í vikunni.  Setlagið sem stafninn hefur verið í síðustu vikur gekk hratt niður í vikunni og í lok hennar var allt jarðgangasniðið að nýju í góðu basaltlagi. Uppsetningu á styrktarbogun var hætt og sprengifærurnar lengdar upp í fulla 5 m lengd.  Verkstaða í lok vikunnar er því þannig að lengd ganganna Dýrafjarðarmegin er orðin 519,4 m.

Samanlögð lengd ganga er  nú 4.177 m sem er um 78,8% af heildarlengd.

Lengd að gegnumbroti er 1.124 m.

Meðfylgjandi myndir eru annars vegar frá 8. janúar af setlaginu og frá 12. janúar, þegar það var „gengið“ niður í gólfið.

DEILA