Bolungavík: Myndlistarnámskeið

Bjarni Skúli Ketilsson, myndlistarmaður.

Myndlistarnámskeið verður haldið dagana 4.-8. febrúar 2019 í Myndlistarstúdíóinu við Hafnargötu í Bolungarvík.

Myndlistamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, eða Baski, áformar að halda myndlistanámskeið sem verður samtals 15 tímar á fimm dögum frá kl. 19 til 22.

Námskeiðið hentar öllum aldurshópum en lágmarksfjöldi þáttakenda er sjö og að hámarki geta verið tíu nemendur. Námskeiðsgjald er 28.000 kr. og innifalið í því eru grunnáhöld svo sem pappír, blýantar, kol, penslar og litir.

Skráning og nánari upplýsingar fást með netfangiu baskicursus@gmail.com og hjá Kristjáni Jóni Guðmundssyni mneð netfanginu krjg@simnet.is.

DEILA