Tillögur um eflingu innanlandsflugs og rekstur flugvalla

Flugvöllurinn á Ísafirði.

Starfshópur sem hafði það hlutverk að móta tillögur um uppbyggingu flugvallakerfisins á Íslandi og eflingu innanlandsflugs sem almenningssamgangna hefur skilað skýrslu til Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Í skýrslunni eru gerðar tillögur um breytingar á fyrirkomulagi innanlandsflugs og rekstri flugvalla og að innanlandsflug verði hagkvæmur kostur fyrir íbúa landsbyggðarinnar.

Lagðar eru fram tillögur um að auka fjárhagslega sjálfbærni þeirra flugvalla, sem gegna hlutverki sem varaflugvellir í millilandaflugi, með því að skilgreina þá sem kerfi flugvalla með sameiginlegan kostnaðargrunn og Isavia ohf. falin fjárhagsleg ábyrgð á rekstri, viðhaldi og uppbyggingu þeirra. Lagt er til að þjónustugjöld verði samræmd á millilandaflugvöllunum og hóflegt þjónustugjald sett á til að standa straum af uppbyggingu vallanna. Slíkt gjald gæti orðið á bilinu 100 kr. til 300 kr. á hvern fluglegg. Mikilvægi öryggishlutverks varaflugvalla tengt millilandaflugi hefur aukist og starfshópurinn telur nauðsynlegt að taka tillit til breyttra aðstæðna á grundvelli þróunarinnar undanfarin ár.

Þá er lagt til að þjónustusamningur ríkisins við Isavia verði framvegis gerður til fimm ára í senn til svo að hægt verði að þróa flugvallakerfið til lengri tíma og stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna.

Loks kynnir starfshópurinn tillögur um hvernig jafna megi aðgengi landsmanna að þjónustu sem aðeins er í boði á suðvesturhorni landsins. Tillaga er gerð um að farmiðar með lögheimili á völdum svæðum á landsbyggðinni verði niðurgreiddir. Starfshópurinn leggur til að tillögurnar verði útfærðar nánar á næsta ári svo þær geti komið til framkvæmda árið 2020.

Skýrsla starfshóps um uppbyggingu flugvallakerfisins og eflingu innanlandsflugs

DEILA