Starf forsætisráðherra 6-7 sinnum mikilvægara en umönnunarstarf

Drífa Snædal, forseti ASÍ.

Drífa Snædal forseti ASÍ, Vilhjálmur Birgisson 1. varaforseti ASÍ og Kristján Þórður Snæbjarnarson 2. varaforseti ASÍ skrifa:

Kjararáð var lagt niður og nú er ljóst hverju er ætlað að taka við. Svo við reynum að byrja á jákvæðu nótunum þá verða ákvarðanir gagnsærri og bundnar ákveðnum tímapunkti en ekki nánast handahófskenndar eins og ákvarðanir kjararáðs voru gjarnan. Það er gott.
Þær ofurhækkanir sem kjararáð hefur úrskurðað um síðustu ár munu hins vegar halda sér og festast í lög. Það er frekar holur hljómur í því þegar kjörnir fulltrúar gagnrýndu ofurhækkanir kjararáðs fyrir sjálfa sig en ætla nú að lögfesta þessar sömu hækkanir í staðinn fyrir að vinda ofan af þeim nú þegar valdið er komið í þeirra hendur.

Ef frumvarpið verður samþykkt er forseti Íslands með 10-11 föld lágmarkslaun ríkisstarfsmanna. Forsætisráðherra og aðrir ráðherrar eru með 6-7 föld lágmarkslaun ríkisstarfsmanna en þingmenn eru með ferföld lágmarkslaun. Ef laun eiga að kristalla ábyrgð og mikilvægi starfa gegnir forsetinn því 10-11 sinnum mikilvægara og ábyrgðameira starfi en starfsfólk í ræstingum og umönnun. Er það sanngjarnt?

Samkvæmt frumvarpinu á fjármálaráðherra að taka ákvarðanir um laun kjörinna fulltrúa, sáttasemjara, seðlabankastjóra, saksóknara og dómara út frá hækkunum á reglulegum launum starfsmanna ríkisins undangengið ár. Þarna erum við aftur lent í meðaltalsgildrunni án þess að taka afstöðu til launasetningar almennt og æðstu embættismenn tryggja að allt launaskrið hjá hinu opinbera skili sér örugglega til þeirra. Tækifærið til að taka launaákvarðanir út frá jöfnuði er látið ónotað og það á að skauta fram hjá umræðunni um launasetningu almennt. Þessu til viðbótar hafa lægstu tekjurnar tekið á sig aukna skattbyrði frá 1990.

Ákvarðanir um hæstu laun hafa verið tekin af manneskjum af holdi og blóði og manneskjur geta ákveðið hvað er sanngjarnt og eðlilegt. Laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna verða aldrei slitin úr samhengi við laun annarra og á meðan ríkið sem launagreiðandi semur um laun sem ekki er hægt að framfleyta sér á er ótrúlegt að verið sé að lögfesta margföld laun.

Alþýðusambandið hefur sagt að það sé lágmark að vinda ofan af launum kjörinna fulltrúa og/eða frysta þau til ársloka 2021. Nú er heimilt að taka ákvarðanir um enn eina hækkunina strax í júlí á næsta ári. Við viljum ganga lengra og nýta þetta tækifæri til að ákvarða hvaða launasetning er sanngjörn og réttlát miðað við lægstu laun. Er starf forsætisráðherra í alvöru 6-7 sinnum mikilvægara en umönnunarstarf?

DEILA