Öll vötn til Dýrafjarðar

Þingeyri.

Markmiða- og framkvæmdaáætlun 2019 verkefnisins öll vötn til Dýrafjarðar hefur litið dagsins ljós og í kjölfarið af því er auglýst eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð.

Auglýst er eftir styrkumsóknum um styrki úr sjóði er verkefnisstjórn Allra vatna til Dýrafjarðar veitir úr í umboði Byggðastofnunar. Umsóknum skal skilað á tölvutæku formi á þar til gerðu eyðublaði sem finna má . Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2019. Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu við Dýrafjörð eru hvattir til að sækja um.

Styrkhæf verkefni eru rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Einnig er heimilt að styrkja stofnfjárfestingu í hvers konar verkefnum að því gefnu að þau raski ekki samkeppni á viðkomandi þjónustusóknarsvæði. Enn fremur samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri Agnes Arnardóttir,Vestfjarðastofu.

Í verkefnisstjórn verkefnisins Öll vötn til Dýrafjarðar sitja eftirfarandi aðilar:
➢ Aðalsteinn Óskarsson, Fjórðungssamband Vestfirðinga.
➢ Arna Lára Jónsdóttir, Ísafjarðarbæ.
➢ Erna Höskuldsdóttir, fulltrúi íbúa.
➢ Eva Pandora Baldursdóttir, Byggðastofnun.
➢ Kristján Þ. Halldórsson, Byggðastofnun
➢ Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, Vestfjarðarstofu.
➢ Wouter Van Hoeymissen, fulltrúi íbúa.
➢ Arnar Sigurðsson, fulltrúi íbúa

DEILA