Merkilega mikið endurvinnanlegt vegna jólahalds

Gámaþjónusta Vestfjarða vill vekja athygli lesenda á því að mikið af sorpi sem fellur til vegna jólanna er endurvinnanlegt:

Óhófleg neysla hátíðanna gefur af sér mikið magn af sorpi, en merkilega mikið af því er endurvinnanlegt. Allur jólapappír á að fara laus í stóra hólfið í endurvinnslutunnunni með öðrum pappa og fernum. Allt plast, þ.e.a.s. hreinar plastumbúðir, plastfilmur, -brúsar, -pokar, -glös o.fl. fer í litla hólfið.

Málmar, t.d. lok af krukkum, niðursuðudósir, tóm sprittkerti og ál, fara í litla hólfið.  Rafhlöður má setja í litla hólfið, en hafa verður þær í pokum. Ljósaseríur og sparperur teljast til raftækja og má skila endurgjaldslaust með öðrum slíkum á næstu móttökustöð.

Vinsamlegast athugið að endurvinnsluefni má ekki vera matarsmitað. Svo nefnt sé dæmi þá er smá olía í pizzukassa í lagi, en ekki bitar af áleggi eða kleprar af osti.

Bein úr kjöt eða fisk verður ekki mold. Því er ekki æskilegt að setja bein í tunnu fyrir lífrænan úrgang.

Ekki má setja hundaskítur eða kattasandur í jarðgerðarílát!

Mandarínukassar fara í almennt sorp.

Á heimasíðu Gámaþjónustu Vestfjarða eru myndbönd þar sem má fræðast um flokkun á endurvinnslu.

DEILA