Jólasýning Safnahússins

Tilkynning frá bókasafninu á Ísafirði:

Hin árlega jólasýning opnar í dag, föstudaginn 7. desember kl. 17. Í ár höfum við lagt okkur fram um að skapa notalega jólastemmningu í sal Listasafnsins. Kvennakór Ísafjarðar mun flytja jólalög undir stjórn Beötu Jóo og sagt verður stuttlega frá sýningunni. Það verður heitt á könnunni að vanda – Verið kærlega velkomin!

DEILA