Isavia þykir óþarflega kostnaðarsamt að halda við flugvellinum á Reykhólum

Flugkapparnir á Reykhólaflugvelli. Mynd: Reynir og Ása.

Þann 24. nóvember síðastliðinn vildi svo óheppilega til að bilun kom upp í flugvél og varð hún að nauðlenda á Reykhólaflugvelli. Frá þessu er sagt á Reykhólavefnum. Vélin nefnist TF-DVD og í henni voru Ásmundur Guðmundsson og Edward Finnsson en þeir voru á leið á Hornstrandir. Þeir urðu að nauðlenda vegna bilunar og rafmagnsleysis.

Halldór Jóns sem á flugvélina TF-FRK fylgdi þeim inn til aðstoðar og stuðnings.

Flugkapparnir leituðu til íbúa á Reykhólum eftir hjálp og að sjálfsögðu átti Guðmundur Sigvaldason varahlutinn sem vantaði og gaf svo flugvélinni start, svo þeir gætu haldið för sinn til Hornstranda áfram.

Flugvöllurinn á Reykhólum er mikið notaður við æfingar á lendingum og flugtökum fyrir unga flugmenn sem eru að fylla punktakortin sín, sem og þyrluflugmenn sem eru að sýna ferðamönnum fegurð Íslands úr lofti. Það hefur aukist til muna að þeir komi þar við.

Að sögn þeirra Ásmundar,Edwards og Halldórs er flugvöllurinn á Reykhólum mikið þarfaþing og á fullan rétt á sér.

Komið hefur fram hjá Isavia að þeim þykir óhóflega kostnaðarsamt að halda opnum flugvellinum á Reykhólum, en bent er á að kostnaður við þessa flugbraut er ca 100.000.- á ári, eftir því sem næst verður komist.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA