Frá skrifstofustjóra Alþingis, vegna ummæla þingmanns á Bylgjunni

Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis hefur sent frá sér svohljóðandi yfirlýsingu:

Í viðtali á Bylgjunni í gærmorgun sagði Anna Kolbrún Árnadóttir alþingismaður að á Alþingi væri mjög sérstakur kúltúr og mátti skilja af orðum hennar að starfsmenn Alþingis væru hluti af honum. Sem skrifstofustjóri Alþingis, og fyrirsvarsmaður starfsmanna þess, vil ég mótmæla þessum ummælum og að starfsmenn Alþingis séu á einn eða annan hátt dregnir inn í þá umræðu sem orðið hefur í fjölmiðlum um samtöl nokkurra þingmanna um samþingsmenn sína og fleiri á veitingahúsi í nágrenni þingsins.

            Þegar starfsmenn hefja störf á Alþingi er brýnt fyrir þeim að sýna háttvísi í hvívetna og koma fram gagnvart þingmönnum og öðrum starfsmönnum af virðingu og nærgætni í orðum og allri framkomu. Á þetta er jafnframt minnt á starfsmannafundum skrifstofunnar. Ég man ekki til þess að undan starfsmönnum hafi verið kvartað að þessu leyti. Starfsmenn skrifstofu Alþingis leggja metnað sinn í að sinna störfum sínum af einlægni og fagmennsku.

Ég harmar þessi ummæli þingmannsins, því að þau eiga ekki við rök að styðjast, og vona að þau séu mælt í ógætni, enda fylgdu með þakklætis- og hrósyrði um starfsmennina sem þakka ber.

            – Helgi Bernódusson,

            skrifstofustjóri Alþingis.

DEILA