Anna Hildur: á trúnó með þjóðþekktum tónlistarmönnum

Anna Hildur Hildibrandsdóttir.

Önnur þáttaröð af Trúnó er væntanleg í Sjónvarp Símans Premium en þar fáum við að kynnast nýrri hlið á þjóðþekktum tónlistarmönnum. Hugmynd og handrit þáttanna á Anna Hildur Hildibrandsdóttir en leikstjóri og tökukona er Margrét Seema Takyar.

 

Mugison, Raggi Bjarna, Högni í Hjaltalín og Gunnar Þórðason eru viðmælendur í nýju þáttaröðinni. Þeir segja okkur frá hlutum og viðburðum í þeirra lífi sem hafa mótað listsköpun þeirra í tónlist með einlægum hætti, segja frá hlutum sem þeir hafa ekki talað um áður. http://Sjá kynningarmyndband um þættina hér: https://www.youtube.com/watch?v=WYN2YrDHN3E

„Þetta eru draumaviðmælendur sem ég fékk í báðum seríunum. Tónlistin þeirra er svo stór hluti af lífi okkar allra. Mig langaði að hafa þættina í eldhúsinu heima hjá þeim og komast að kjarnanum um lífið og listina. Það var líka ótrúlega spennandi að vinna með leikstjóranum og tökukonunni Margréti Seemu Takyar.”

 

Margrét Seema bætir við; „Það kom alltaf ákveðið móment þar sem við hættum öll að pæla í hvað mætti og hvað mætti ekki segja og það varð yfirleitt á þessum mómentum sem þessir stórkostlegu listamenn urðu enn stærri og nálægir manni. Galdurinn við að leikstýra og filma Trúnó var að ná þessum mómentum. Ná trúnóinu þannig að þeir sem horfa heima upplifi það saman og við gerðum á tökustað.”

 

All­ir fjórir þættirnir verða aðgengi­leg­ir í Sjón­varpi Sím­ans Premium 21. desember en þeir eru fram­leidd­ir af Tattarrattat fyrir Símann.

DEILA