Vísindamenn endurskapa sögu stjörnumyndunar í alheiminum

Kári Helgason.

Stórum alþjóðlegum hópi vísindamanna hefur tekist að mæla alla samanlagða stjörnubirtu alheimsins og endurskapað gang stjörnumyndunnar yfir tímabil sem nær yfir 90% af sögu alheimsins. Grein um niðurstöður hópsins birtist í nýjasta hefti hins virta vísindatímarits Science sem kemur út á morgun en meðal helstu forsprakka rannsóknarinnar er Kári Helgason, stjarneðlisfræðingur við Raunvísindastofnun Háskólans.

Í greininni segir Kári Helgason að niðurstöðurnar sýni að fyrri hugmyndir vísindamanna um stjórnumyndun í alheiminum voru á réttri leið.

Greinina í heild sinni er að finna undir aðsendar greinar.

Himininn í gammageislum eins og hann blasir við Fermi sjónauka NASA. Rauðleita strikið fyrir miðju sýnir skífu Vetrarbrautarinnar okkar. Staðsetning risasvartholanna sem notuð voru í rannsókninni eru merkt með grænum punktum.
DEILA