Sífellt fleiri konur fara á skotvopnanámskeið

Gæsir í oddaflugi.

Tímabili skotvopna- og veiðikortanámskeiða er lokið í ár. Alls auglýsti teymi veiðistjórnunar og lífríkismála hjá Umhverfisstofnun 41 námskeið um allt land. Þátttakendur voru ríflega 1380 og eru 550 Íslendingar nýir veiðikorthafar að loknum námskeiðunum. Í vöxt hefur færst að konur afli sér skotveiðiréttinda. Kynjahlutfall á námskeiðum Umhverfisstofnunar þetta árið er um 20% yfir landið.

„Konur voru 16% þátttakenda fyrir vestan en haldin voru bæði skotvopna og veiðikortanámskeið á Ísafirði í júní,“ sagði Ásdís Helga Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun á Egilsstöðum í samtali við BB. Hún hefur umsjón með námskeiðshaldinu og segir að fjöldi þeirra sem sóttu námskeiðin hafi verið með því mesta miðað við undanfarin ár. Áhugi á skotveiðum sé töluverður en ekki síður að öðlast skotvopnaréttindi til að stunda skotíþróttina á skotvöllum landsins án þess að fara endilega á veiðar.

Sæbjörg

sfg@bb.is

DEILA