Samstarfssamningur Samskipa og Arnarlax

Kjartan Ólafsson stjórnarformaður Arnarlax og Birkir Hólm Guðnason forstjóri Samskipa á Íslandi.

Eins og frá var grein í gær á bb.is hófu Samskip reglulegar áætlunarsiglingar frá Bíldudal til Evrópu. Borist hefur fréttatilkynning frá Samskipum um þessi tímamót:

Samskip og Arnarlax hafa skrifað undir samstarfssamning um að Samskip annist útflutning á afurðum Arnarlax frá Bíldudal og innflutning á aðföngum fyrir fyrirtækið. Siglingarnar hófust miðvikudaginn 31. október þegar Skálafell kom í sína fyrstu ferð til Bíldudals, en langt er um liðið síðan þaðan hafa verið beinar millilandasiglingar.

Flutningur fyrir Arnarlax fer inn á svonefnda Suðurleið í nýju siglingakerfi Samskipa. Flutningaskip Samskipa hefur vikulega viðkomu á Bíldudal á miðvikudögum. Þaðan verður siglt um Reykjavík og komið til Hull í Bretlandi á sunnudögum. Þaðan er svo siglt áfram til Rotterdam og komið þangað á mánudegi.

Suðurleið Samskipa fellur vel að þörfum Arnarlax og annara sem flytja vilja ferskar afurðir til og frá Bretlandi og meginlandi Evrópu.

Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa á Íslandi:

„Við bindum miklar vonir við þessa nýju þjónustu sem við getum nú boðið útflytjendum á ferskum fiski. Við fögnum því sérstaklega að fá Arnarlax í viðskipti og að geta nú boðið fyrirtækjum á Vestfjörðum afburðatengingu við mikilvæga markaði í Evrópu og þaðan áfram um allan heim í viku hverri.“

Kristian Matthiasson forstjóri Arnarlax:

„Þessi samningur er mikilvægur þáttur í áframhaldandi uppbyggingu Arnarlax. Við afhendum ferska hágæðavöru inn á kröfuharða markaði og erum þar að keppa við fyrirtæki sem eru stærri og nær markaðnum. Þá er gríðarlega mikilvægt að flutningsleiðin sé bæði örugg, fagleg og hagkvæm.“

Skálafell, skip Samskipa, kom í sína fyrstu ferð til Bíldudals síðastliðinn miðvikudag.

DEILA