Ríkisstjórn samþykkir tillögur um eflingu byggðar við Bakkaflóa

Bakkafjörður við Bakkaflóa.

Ríkisstjórn hefur samþykkt tillögur  um eflingu byggðar við Bakkaflóa. Tillögurnar voru settar fram í skýrslu nefndar um málefni byggðarinnar. Í nefndinni sátu fulltrúar fimm ráðuneyta.

Í skýrslunni er lagt til að aflaheimildir til ráðstöfunar í Bakkafirði verði auknar, vegagerð um Brekknaheiði flýtt, byggðin tekin inn í verkefnið Brothættar byggðir, samfélagssáttmáli gerður milli íbúa, sveitarstjórnar og ríkis og loks að starfsstöð í náttúrurannsóknum verði sett á fót í Bakkafirði.

Nefndin leggur til að ríkið verji allt að 40 milljónum króna á ári í fimm ár til undirbúnings verkefna á Bakkaflóasvæðinu. Fjármunum verður varið til að styðja við ýmis uppbyggingarverkefni í tengslum við tillögur nefndarinnar. Kostnaður vegna aflaheimilda og vegagerðar eru utan þessa kostnaðar.

Fimm megintillögur eru lagðar fram í skýrslu nefndarinnar.

Auknar aflaheimildir
Lagt er að til 150 þorskígildistonnum verði að lágmarki bætt við aflaheimildir til ráðstöfunar í Bakkafirði og óskað eftir samstarfi um nýtingu þeirra. Jafnframt verði kannað hvort ná megi fram jákvæðari áhrifum á samfélagið með því að slá af kröfum um vinnsluskyldu á Bakkafirði fyrir þessar viðbótarheimildir, að minnsta kosti tímabundið.

Bundið slitlag á Langanesströnd
Tekið er undir áform Vegagerðarinnar og eindregið lagt til að lagning bundins slitlags á Langanesströnd hefjist á árinu 2019 og að verkinu ljúki eigi síðar en 2021. Í beinu framhaldi verði hafist handa við vegagerð um Brekknaheiði sem er á samgönguáætlun.

Brothættar byggðir
Lagt er til að byggðin við Bakkaflóa verði tekin inn í verkefnið Brothættar byggðir og verkefnisstjóri ráðinn til að stýra verkefninu. Nefndin leggur til að verkefnisstjóri verði í fullu starfi og hafi búsetu á Bakkafirði ef kostur er.

Samfélagssáttmáli um þjónustu og umhverfismál
Nefndin leggur til að gerður verði samfélagssáttmáli á milli sveitarstjórnar, íbúasamtaka og ríkis. Þar verði meðal annars lýst yfir vilja til að snúa við neikvæðri byggðaþróun og settar fram skuldbindingar hvers aðila fyrir sig. Í umræddum samfélagssáttmála mætti taka á ýmsum málum, svo sem átaki í að efla nærþjónustu og átaki í umhverfismálum.

Starfsstöð í náttúrurannsóknum
Loks er lagt til að skoðað verði að koma á fót starfsstöð í náttúrurannsóknum á Bakkafirði sem hefði það hlutverk að rannsaka lífríki Bakkaflóa, þar með talið lífríki Finnafjarðar og nágrennis. Um væri að ræða útibú frá annaðhvort Náttúrufræðistofnun Íslands eða Náttúrustofu Norðausturlands.

 

DEILA