Neyðarkallinn til sölu

Dagana 1. til 3. nóvember munu björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar standa
fyrir fjáröflun um allt land sem kallast “Neyðarkall frá björgunarsveitum”.
Björgunarsveitafólk mun standa vaktina á fjölförnum stöðum þessa daga og selja Neyðarkall.

Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, hóf átakið formlega í Kringlunni  í gær og seldi fyrsta neyðarkallinn.

Hagnaður af sölunni rennur beint til björgunarsveita og verður hann notaður til að efla
búnað og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins.
Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit
fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað,
tækni og þekkingu.

En þrátt fyrir að meðlimir björgunarsveitanna séu allir sem einn sjálfboðaliðar er rekstur
þeirra dýr. Þjálfa þarf björgunarsveitarfólk, tæki og tól verða að vera tiltæk og í góðu lagi,
húsnæði þarf undir búnað og olíu á tækin. Fjármagns er aflað með ýmsum hætti; sölu
flugelda, dósasöfnun, gæsluverkefnum, jólatréssölu og ýmsu öðru, og nú með átakinu
Neyðarkall frá björgunarsveitum.

Vonast er til að landsmenn taki meðlimum björgunarsveitanna opnum örmum og styðji
þannig við bakið á fórnfúsu starfi þeirra þúsunda björgunarsveitarmanna sem eru til taks
allan ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda.

DEILA