Lítill skilningur stjórnvalda á verkefnum framundan

Drífa Snædal, forseti ASÍ.

Vikulegur pistill forseta ASÍ, sem birtist í gær:

Í vikunni varð ljóst að stjórnvöld ætla ekki að eiga frumkvæði að því að jafna kjörin og beita skatt- og bótakerfinu til jöfnuðar. Slíkar breytingar þarf greinilega að sækja fast og eru það vonbrigði.
Nefndarálit meirihluta fjárlaganefndar sýnir okkur stjórnvöld sem hafa lítinn skilning á þeim risa verkefnum sem bíða okkar og hika ekki við að svíkja gefin loforð. Má þar nefna loforð um 4 miljarða aukningu í málefni öryrkja og fatlaðs fólks sem hefur verið mikið í umræðunni en auk þess lítur út fyrir að meirihluti fjárlaganefndar ætli beinlínis að brjóta samning um framlög til VIRK og munar þar 73 milljónum króna. Samkvæmt samningi á framlag ríkisins til VIRK að nema 0,05% af gjaldstofni tryggingagjalds sem þýður 821,5 milljónir kr. en samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verður upphæðin 739,5 milljónir. Þrátt fyrir ábendingar hefur þessi upphæð ekki verið löguð í meðförum fjárlaganefndar.
Um áramótin renna út kjarasamningar rúmlega helmings starfandi fólks á íslenskum vinnumarkaði. Til að samningar náist þarf sterka aðkomu ríkisins í skatta- og bótakerfum, húsnæðismálum og baráttunni gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Þessar áherslur er verkalýðshreyfingin sammála um og hafa legið fyrir lengi. Stjórnvöld hafa líka verið upplýst um áherslurnar enda blasir vandinn við þeim sem vilja sjá hann. Engu að síður ákveða stjórnvöld að sýna enga tilburði í þessa átt við vinnslu fjárlaga eins og þessi úrlausnarefni komi þeim lítið við.
Það er ljóst að verkalýðshreyfingin þarf að vera háværari og reisa skýrari kröfur til að ná fram nauðsynlegum samfélagsbreytingum.
Að öðru leyti þakka ég öllum þeim fjölmörgu sem ég hef hitt í liðinni viku fyrir samtölin og
samvinnuna. Umfjöllunarefni vikunnar voru meðal annars aukin grasrótarstarfsemi stéttarfélaga, auknar kröfur í útboðum ríkisstofnana um aðbúnað og kjör starfsfólks, örorkulífeyrismál, skipulag 1. maí, sagnfræðirannsóknir um fátækt fólk, ráðstefna um ójöfnuð, ákærur í mansalsmálum og fleira og fleira. Ég naut þess heiður að halda fyrirlestur í vinnumarkaðsfræði við HÍ, í námskeiði sem ég tók sjálf fyrir 16 árum síðan auk þess sem ég tók þátt í fjörugum fundi Samfylkingarfólks á Akranesi.

Drífa Snædal

forseti ASÍ

DEILA