Listasafn Ísafjarðar sýnir verk Sigrid Valtingojer í Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði

Sigrid Valtingojer.

Laugardaginn 10. nóvember kl. 14:30 opnar sýning á verkum Sigrid Valtingojer í sal Listasafns Ísafjarðar í Gamla sjúkranúsinu við Eyrartún.  Sýningin er samvinnuverkefni Listasafns ASÍ og Listasafns Ísafjarðar.

 

Sigrid Valtingojer

valin verk úr safneign Listasafns ASÍ.

10.11 – 1.12 2018 og

  1. – 26. Janúar 2019

 

Sigrid Valtingojer (1935-2013) fæddist í Teplitz í Tékklandi en var búsett í Þýskalandi á árunum 1045-1961.  Hún stundaði nám í Frankfur/main, Institut für modegrafik á árunum 1954-1958. Hún fluttist til Íslands árið 1961 og vann við auglýsingateiknun fyrstu árin.  Sigrid lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1979 og kenndi við grafíkdeild skólans á árunum 1986-2001.  Hún var gestakennari og gestalistamaður við Kyoto Seika listaháskólann í Kyoto 1990 og stundaði framhaldsnám við Winchester School of Art í Barcelona 2001-2002.

Sigrid stofnaði eigið verkstæði og vann þar til dauðadags. Hún vann verk sín með mismunandi tækni og í Listasasafni ASÍ er að finna ætingar/akvatintur, dúkristur, tréristur, frottageverk, carbarundum og þurrnál. Íslenskt landslag var uppspretta margra verka hennar. Hún einfaldar  og stílfæra form náttúrunnar eða brýtur þau upp og endurraðar þeim. Sigrid var heimsborgari, ferðaðist mikið og sýndi verk sín víða erlendis. Hún hélt einnig fjölda einkasýninga hér á landi og verk eftir hana eru í eigu helstu safna á Íslandi og víða um heim.  Umhverfis- og friðarmál voru henni hugleikin.  Hún var ötul baráttukona fyrir frjálsri Palestínu og fór þangað sem sjálfboðaliði árið 2003.  Hún hélt sýningar fyrir málstaðinn hér á landi og í Þýskalandi.

Árið 2013 fékk Listasafn ASÍ afhent dánargjöf Sigrid Valtingojer, en hún arfleiddi safnið af öllum verkum sínum að sér látinni auk höfundarréttar. Í safninu eru um 300 grafíkverk, flest þeirra í nokkrum eintökum.

Sýningin er opin á opnunartíma Safnahússins kl. 1-6 virka daga og 1-4 á laugardögum.  Hún stendur frá 10. nóvember til 1. desember 2018 en víkur þá fyrir jólasýningu safnsins fram yfir áramót og verður aftur til sýnis 5. – 26. janúar 2019.

DEILA