Kampi ehf. kaupir karakerfi frá Skaganum 3X

Frá vinstri: Freysteinn Nonni Mánason, Brynjar Ingason, rekstrarstjóri, Jóhann Bæring Gunnarsson og Albert Haraldsson, rekstrarstjóri.

Rækjuverksmiðjan Kampi ehf. á Ísafirði skrifaði nýverið undir samning um kaup á karakerfi
frá Skaginn 3X. Ávinningur kerfisins eru miklir þar sem það eykur afköst og sjálfvirkni
verksmiðjunnar og notkun lyftara minnkar því til muna eins sem meðhöndlun á hráefni og
körum verður betri.

Rækjuverksmiðjum hérlendis hefur fækkað á undanförnum árum og eru nú aðeins fjórar
rækjuverksmiðjur hérlendis í fullum rekstri. Það er mikil breyting frá því sem áður var þegar rækjuveiði og rækjuvinnsla var mun stærri þáttur í sjávarútveginum á Íslandi. Það er því virkilega ánægjulegt að Kampi ehf. skuli fara í fjárfestingu sem þessa sem eykur öryggi og sjálfvirkni í vinnslunni til muna.
,,Reksturinn hjá Kampa ehf. hefur gengið vel undanfarna mánuði og góður stígandi hefur
verið í vinnslunni. Það var því kjörið tækifæri að fara út í fjárfestingar á búnaði í
rækjuverksmiðjunni. Við erum að auka afköst og sjálfvirkni hjá okkur og eru kaup á hágæða karakerfi frá Skaginn 3x liður í því ferli´´, segir Albert Haraldsson rekstrarstjóri Kampa ehf. á Ísafirði.
,,Fyrirtæki í sjávarútvegi hérlendis eru ávallt að leita leiða til þess að ná fram meiri afköstum,
auka sjálfvirkni og bæta meðhöndlun afurða og þar erum við hjá Skaginn 3X fremst í flokki,
segir Freysteinn Nonni Mánason svæðissölustjóri hjá Skaginn 3X.
Áætlað er að búnaðurinn verði kominn í fulla notkun í febrúar 2019.

DEILA