Færeyingar vilja fá Heiðar Birni í sínar raðir

Allar líkur eru á því að Heiðar Birnir haldi til Færeyja til að þjálfa meistaraflokksliðið B71 í knattspyrnu karla.

Ísfirðingurinn Heiðar Birnir Torleifsson hefur fengið tilboð frá færeysku B-deildar félagi í knattspyrnu, um að flytjast út og æfa félagið. Heiðar Birnir hefur verið áberandi hér á landi sem yfirþjálfari Coerver Coaching á Íslandi en gæti nú endað sem þjálfari B71 í Færeyjum. Heiðar fékk tilboð frá B71 í sumar en var þá búsettur í Danmörku og gat ekki flutt vegna fjölskylduaðstæðna. Hugmyndin var þó ekki dottin upp fyrir því Heiðar fór til Færeyja og skoðaði aðstæður í júlí og líkurnar eru miklar á að hann fari ytra og þjálfi meistaraflokk karla ásamt yngri flokkum.

Fótbolti.net hefur sagt frá því að Færeyingar séu farnir að horfa meira til Íslands eftir að Heimir Guðjónsson gerði HB að meisturum með miklum yfirburðum í sumar. Guðjón Þórðarson er þegar búinn að taka við liði í efstu deild og Sigurður Jónsson er einnig á óskalista félaga þar í landi.

B71 á áhugaverða sögu. Hefur jafnan verið í efstu deild og urðu bikarmeistarar á tíunda áratug síðustu aldar. Undanfarið hefur þó gengið illa og liðið rétt slapp við fall í C deildina í sumar. Það verður áhugavert að fylgjast með Heiðari Birni í Færeyjum í framtíðinni.

Sæbjörg
sfg@bb.is

DEILA